Eru 170 einangruð ríki í heiminum?

Ef Ísland gengur ekki í Evrópusambandið einangrast landið. Þetta heyrist reglulega úr hópi þeirra sem styðja inngöngu Íslands í sambandið þrátt fyrir að Ísland eigi í víðfemu alþjóðlegu samstarfi meðal annars í gegnum fjölmargar alþjóðastofnanir og tvíhliða samninga og sé klárlega á meðal alþjóðavæddustu ríkja heimsins.

Hvenær varð það mælikvarði á það hvort ríki teljist einangruð hvort þau eru í Evrópusambandinu eða ekki? Það eru 27 ríki í sambandinu af þeim í kringum 200 sem fyrirfinnast í heiminum. Eru þá í kringum 170 einangruð ríki í heiminum? Er Kanada þá einangrað fyrst það stendur utan Evrópusambandsins eða Noregur svo dæmi séu tekin.

Á hinn bóginn má færa rök fyrir því að með inngöngu í Evrópusambandið yrði dregið verulega úr vægi Íslands á alþjóðlegum vettvangi. Einkum þar sem mikið vald í þeim efnum, einkum til þess að gera viðskiptasamninga við önnur ríki, yrði framselt til stofnana sambandsins þar sem vægi Íslands yrði lítið og möguleikar á áhrifum eftir því.

Vert er að hafa í huga að Evrópusambandið er í grunninn tollabandalag sem sviptir ríki sín meðal annars frelsi sínu til þess að gera sjálfstæða viðskiptasamninga við ríki utan þess, meðal annars um fríverzlun. Þá hefur verið unnið leynt og ljóst að því að koma á einni sameiginlegri utanríkisstefnu sambandsins sem kæmi í staðinn fyrir sjálfstæðar utanríkisstefnur ríkjanna.

Það er nefnilega ansi hætt við því að mesta hætta Íslands hvað einangrun varðar sé þvert á móti að einangrast innan Evrópusambandsins frá sjálfstæðum samskiptum og viðskiptum frá þeim mikla fjölda ríkja sem standa utan sambandsins þar sem flest bendir til þess að framtíðarmarkaðina sé að finna frekar en í hinni hnignandi Evrópu.

Höfundur: Hjörtur J. Guðmundsson http://sveiflan.blog.is/blog/sveiflan/entry/1249291/  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góður pistill, tek undir þetta með þér.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.7.2012 kl. 09:36

2 Smámynd: Örn Ægir Reynisson

Vel að orði komist um þreytandi bullið í trojuhestum Evrópusambandsins!

Örn Ægir Reynisson, 15.7.2012 kl. 19:22

3 Smámynd: Óskar

Hræðsluáróður ESB andstæðinga verður hlægilegri með hverjum deginum.

Óskar, 15.7.2012 kl. 20:12

4 identicon

Komið þið sæl; síðuhafi - og aðrir gestir, þínir !

Nafni minn; Haraldsson (kl. 20:12) !

Mér sýnist nú; hjarta þitt sjálfs, vera niður í brókum þínum, þegar þú þorir ekki einu sinni, að svara mér; eins og maður, á þinni eigin síðu, nafni minn.

Þér ferst illa; að tala um ''hræðslu'' annarra, dreng tetur.

Tek fram; að enginn, er ég aðdáandi Hjartar J. Guðmunddsonar, né annarra attaníossa gömlu hryðjuverka flokkanna 4urra, gott fólk.

En; nafni - haltu þér á mottunni, þori þú ekki, að svara fólki, eins og maður !

Með; hinum beztu kveðjum, úr Árnesþingi /   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 15.7.2012 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband